Lily Allen á einhverjar flottustu sokkabuxur sem ég hef séð lengi. Þær eru eins og sokkabelti en samt er ekkert sokkabelti. O-ó!
Hún ber þær ferlega smekklega þar sem hún notar ullarsjal utanyfir sig og er í smart vesti og svona með. Ekkert portkonulegt fyrir utan það að Lily er voða spennt eitthvað fyrir því að sýna geirvörturnar á sér alltaf. Geirvörtuflassari. What ever get’s u off Lily. Ég fíla allavega sokkabuxurnar þínar!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.