Það er sjaldan sem að maður sér svona svakalega frumlegar og sérstakar flíkur eins og þessar sem kona að nafni Setareh Mohtarez á heiðurinn að…
…Ótrúlegt en satt þá er erfitt að finna upplýsingar um hana á netinu en ég efast ekki um að það eigi eftir að breytast með tímanum.
Kjólarnir hennar minna helst á skúlptúra úr geimnum.
Formin eru svakalega falleg og prentið líka, litríkur stjörnugeimur.
Heildarlínan minnir helst á fullkominn regnboga, hver og ein flík er semsagt í ákveðnum regnbogalit, svo eru allar flíkurnar paraðar með svaðalegum platform-skóm.
Perfection!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.