Sean Penn (53) og Charlize Theron (38) eru heitasta Hollywood parið um þessar mundir og að sögn vina þeirra er stutt í trúlofun.
Parið byrjaði að deita í lok síðasta árs en fóru saman til Hawaii til að fagna áramótum. Þau opinberuðu samband sitt þegar Sean hélt góðgjörðarviðburð til styrktar Haiti í janúar s.l og hafa að sögn vina þeirra verið óaðskiljanleg allar götur síðan. Fögnuðu t.a.m. valentínusardegi í Cabo San Lucas í Mexíkó og voru þar öll hin krúttlegustu, leiddust hvert sem þau fóru.
Stutt er þar til Sean mun leikstýra kærustunni ásamt Javier Bardem í myndinni The Last Face en hún verður tekin upp í Afríku í sumar.
Charlize og Sean eru byrjuð að búa saman en sömu heimilidarmenn slúðurpressunnar vestra segja að þau hafi hugleitt að ættleiða barn.
Sean á fyrir synina Dylan, 23, og Hopper, 20, með sinni fyrrverandi en Charlize á tveggja ára gamlan dreng að nafni Jackson. Hann ættleiddi hún í mars 2012.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.