Charlize Theron og Sean Penn skelltu sér á ströndina fyrradag, nánar tiltekið á Malibu ströndina rétt utan við Hollywood.
Penn skellti sér á brimbretti meðan Charlize slakaði á og las í sólinni.
Svo kom hann og knúsaði sína heittelskuðu sem lá bara si svona við hliðina á almúgafólki í á handklæðinu sínu í sólbaði. Af því það er svo mikið um almúgafólk á Malibu ströndinni. Sean Penn er og hefur lengi verið mikill brettamaður enda í fáránlega góðu formi miðað við aldur og fyrri störf.
Að sögn Sollu Eiríks, sem eldaði eitt sinn eftirrétt ofan í kappann, borðar hann engan sykur og engar kartöflur. Það skilar sér greinilega að einhverju leiti til vaxtarlagsins, hann er ekki lítið heitur karlinn.
Sean Penn og Charlize Theron hafa verið að hittast í rúmt ár en hann leikstýrði henni nýverið í mynd sem fengið hefur nafnið The Last Face. Hann sagði hana einfaldlega vera draum allra leikstjóra en Charlize hefur margsinnis verið verðlaunuð fyrir hæfileika sína á sviði leiklistarinnar.
Í viðtal við franskt tímarit í febrúar leiðrétti hann líka blaðamann sem spurði hann út í “kærustuna”.
„Hún er ekki kærastan mín,” svaraði Penn. „Hún er stóra ástin í lífi mínu!”
Framundan hjá stóru ástinni í lífi Penn er svo að kynna næstu mynd, Mad Max; Fury Road, sem er væntanleg til sýninga í Bandaríkjunum á morgun, 15. maí.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.