Flestir sem láta sig málefni Hollywoodglamúrs varða vita nú að Seal og Heidi Klum að skilja.
Ég hef nú löngum yppt öxlum og haldið áfram ferð minni um netheima þegar ég heyri sambandsslitafréttir frá Hollywood, en þetta finnst mér vera leiðinlegar fréttir því þau virtust vera svo ástfangin, svo samstillt og svo ofsalega ástfangin alltaf.
Mér fannst þau vera æðislegt par sem gerði sér lítið fyrir og gifti sig á hverju ári!
Og seinustu ár, í kringum hrekkjavökuna, hef ég alltaf beðið spennt eftir því að sjá hvað þau skötuhjú taka sér fyrir hendur þetta árið, enda hafa þau lagt mikið upp úr búningunum og taka þetta af metnaði.
Ég hef tekið saman myndir af hrekkjavökubúningum þeirra seinustu ár og er það mitt tribjút til þeirra ágæta sambands…. versgú:
Hrafnhildur, eða Krummi, er mamma, förðunarfræðingur, leikkona, kærasta, systir, dóttir, handverkskona og listakona svo fátt eitt sé nefnt. Ung flutti hún frá Sauðárkróki til Reykjavíkur þar sem hún lærði förðunarfræði en seinna flutti hún til Alabama, USA þar sem hún lærði leiklist. Eftir nokkur ár í Bandaríkjunum lá leið hennar aftur til Sauðárkróks og hún er því rödd landsbyggðarinnar á meðan pjattrófa. Hrafnhildur er fædd 21. febrúar árið 1980 og er fiskur.