Leikkonan Scarlett Johansson á nú von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum Romain Dauriac.
Scarlett staðfesti fréttirnar við fréttamiðilinn E! News í dag. Þau Romain hafa verið saman síðan í nóvember 2012 en trúlofuðu sig í september síðastliðinn.
Það hefur ýmislegt breyst á einu ári hjá leikkonunni því í febrúar á síðasta ári sagðist hún, í viðtali við ELLE, ekki ætla að eignast börn á næstunni. Hún væri í góðu sambandi með kærastanum, vinnan væri tímafrek og að barneignir skiptu hana ekki máli.
Hún sagði þó í viðtali við Daily Mail í desember síðastliðinn vilja stofna til fjölskyldu þegar rétti tíminn kæmi.
Nú virðist rétti tíminn kominn hjá Scarlett! Nú bíðum við spennt eftir óléttumyndum og litla erfingjanum!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com