Þær Scarlett Johanson og Kate Winslet höfðu ekki mikið fyrir því að mæta í þessa myndatöku, enda fyrirskipað að rétt greiða gegnum hárið og mæta svo í stúdíó snemma að morgni.
Þær máttu hvorki nota bauga né bólufelara, maskara eða meik… bara ekkert, ekki frekar en Brad Pitt sem mætti í sömu myndatöku…
… og sjálf Oprah Winfrey líka en sú er almennt skyggð og máluð hægri vinstri eins og leikari í þöglu myndunum fyrir hverja myndatöku.
Tilefnið var hið svokallaða Hollywood Portofolio ljósmyndarans Chuck Close en hann tekur myndir sínar upp á Polaroid og stækkar þær svo vel upp. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Chuck myndar stjörnurnar en hann vill ekki sjá farða á þessu góða fólki, nú eða annað prjál. Hér fyrir neðan er flott viðtal við karlinn en restina af myndunum er að finna í nýjasta tölublaði Vanity Fair.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.