Einu sinni var MANGO búð í Smáralindinni og ég verslaði þar mjög oft. Núna versla ég alltaf þar ef ég fer til Spánar eða eitthvert annað þar sem slíkar verslanir er að finna enda er þetta æðislegt merki, eins og hún Scarlett Johanson sem er núna nýjasta andlit merkisins ásamt Penelope Cruize.Hugsanlega reddaði Penelope góðum díl?
Þær urðu jú vinkonur þegar þær léku saman í hinni frábæru og fallegu mynd Woody Allen, Vicky, Christina, Barcelona.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Scarlett Johanson er andlit einhvers merkis því nú þegar þjónar hún markaðssetningu á Moet & Chandon kampavíni, D&G snyrtivörum og á síðasta ári var hún andlit Louis Vutton. Með góðan smekk og algerlega goooorrrdjöss blondí með ótrúlega fína klippingu. Ekkert nema elegant og sexý í anda Brigitte Bardot.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.