Það hefur ekki farið mikið fyrir Scarlett Johanson undanfarið en eftir að hún og Ryan Reynolds skildu hefur hún haldið sig mikið út af fyrir sig.
Leikkonan er í nýjasta tölublaði ELLE á Spáni. Þar sýnir Scarlett flottan kroppinn og er náttúruleg á myndunum, ekki of mikið máluð og með hárið svolítið úfið.
Orðrómur hefur verið á kreiki að leikkonan muni leika aðalhlutverkið í kvikmyndum um bækurnar 50 Shades of Grey en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum. Aðdáendur bókanna verða þó örugglega ekki sviknir að fá hana sem aðalleikkonu myndarinnar.
Nóg er að gera hjá Scarlett núna í framhaldsmyndum en upptökur fara senn að hefjast á Avengers 2 og Captain America.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig