Leikkonan Sarah Jessica Parker hélt upp á 75 ára afmæli mömmu sinnar í fyrradag með pompi og prakt.
Hún leigði sérstakt rými á trendý veitingastaðnum Le Charlot í Upper East side hverfi Manhattan þar sem boðið var upp á hvern réttinn á fætur öðrum en í matarboðinu voru samankomnir margir ættingjar og vinir.
Meðal annars fékk amma gamla að hitta 11 barnabörn sem voru á aldrinum 12 og niður í 2 vikna.
Sarah Jessica Parker á heil sex hálfsystkini en mamma hennar, Barbara, á sjö börn samtals úr tveimur hjónaböndum. Hún starfaði bæði sem leikkona og kennari þar á undan en faðir Söruh, Stephen Parker, var blaðamaður sem hún skildi við þegar Sarah var enn barn að aldri. Þá giftist hún vörubílstjóranum Paul Forste.
Sjálf hefur Sarah Jessica Parker haldið mömmu sinni uppi í nokkuð mörg ár en leikkonan heldur áfram að vinna þó að hún gæti hæglega hætt því.
Myndirnar sem hún hefur leikið í upp á síðkastið hafa þó fæstar fengið góða dóma enda vekur hún enn mesta athygli þegar hún tengist á einhvern hátt tískubransanum eða SATC þáttunum.
Sarah, sem er 48 ára, lifir nefninlega enn á þáttunum vinsælu Sex and the City sem voru sýndir í sjónvarpi á árabilinu 1998 -2004 enda má segja að karakter hennar og Carrie Bradshaw hafi nánast runnið saman í einn.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.