Sarah Jessica Parker talar opinskátt um hjónaband þeirra Matthew Broderick í nýjasta tölublaði Harpers Bazaar en það er afar sjaldgæft að leikkonan tali um einkalíf sitt í viðtölum.
“Ég elska hann, kallið mig klikkaða en ég ELSKA manninn minn, við tileinkum líf fjölskyldu okkar og og fjölskyldan er lífið,” segir Sarah í viðtalinu og bætir við…
“Ég elska líf okkar saman, ég elska að hann er faðir barnanna minna og það er vegna hans að það er til annar heimur sem ég elska”.
Það var uppi hávær orðrómur árið 2008 um að Matthew (51) hefði haldið framhjá en Sarah gerði sér aldrei í hugarlund að líf þeirra yrði svona mikið á tannanna hjá fólki.
Sarah segir einnig að þau hafi aldrei verið að hugsa um peninga eða frægð heldur bara leiklistina, að leika er eitthvað sem þau hafa bæði ástríðu fyrir og þau vildu leggja hart að sér til að geta unnið sem leikarar en leikhúsið heillaði alltaf.
Það kom Söruh á óvart hversu mikið hún þurfti að leggja á sig til þess að verja hjónaband sitt fyrir kjaftasögununum en það tókst og hún segir einnig að þau hafi þurft að koma sér í visst ástand eða á vissan stað til þess að geta tæklað alla þessa orðróma.
Sarah er nú á fullu að leggja lokahönd á skólínu sem mun einfaldlega heita SJP en hún vinnur hana í samvinnu við George Malkemus, forstjóra Manolo Blahnik. Sarah segist elska að hanna skó og skótískan sé svo fjölbreytt í dag en litir eru vinsælir og hún er að fíla það í botn!
Greinilega spennandi tímar framundan hjá leikkonunni og það verður spennandi að sjá nýju skólínu leikkonunnar sem gerði skó að tískutrendi þegar hún lék í Sex in The City.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig