Sarah Jessica Parker og Hugh Grant mættu saman til frumsýningar á myndinni “Did You Hear About The Morgans?” í London í gær og karlinn átti í mesta basli með að hafa hendurnar á réttum stað.
Hugh var meiriháttar vinalegur við mótleikonu sína og lagði lófann ljúflega á “bak” hennar meðan hún brosti sínu blíðasta til ljósmyndara. Kannski er hann bara svona -eins og týpan sem hann leikur í Bridget Jones? Hver veit… hann er allavega ekki mjög stilltur.
Sarah, sem er 44 ára (belive it or not), klæddist flottum bleikum mini kjól á frumsýningunni og hefur eflaust ekki reynsluekið honum mikið áður því hún átti í talverðu basli með að vera siðprúð. Þurfti að hafa sig alla við svo að kjóllinn héldist á sínum stað…og auðvitað tóku ljósmyndarar eftir þessu öllu.
En hún var samt ógó sæt að vanda og glæsileg með þennan fallega dansaralíkamann sinn sem ber allar flíkur vel þó daman sé bara 1.59 cm á hæð 🙂
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.