Sandra Bullock sagði í viðtali á dögunum að hún elski að vera mamma og þakkar litla stráknum sínum fyrir hvern þann dag sem þau eiga saman.
Sandra fór alla leið í búningavali þetta árið en hún mætti í Hrekkjavökupartý hjá leikskóla sonar síns íklædd búningi í anda “Día de Muertos” eða Dagur hinna dauðu. Louis litli var klæddur í beinagrindarbúning og virtist ekki alveg nenna að vera með fylgihlutina á sér.
Nýjasta kvikmynd Söndru “Gravity” trónir á toppnum vestanhafs og gagnrýnendur lofa myndina í bak og fyrir.
Það er greinilegt að Sandra er með forgangsröðunina á hreinu og er ekkert feimin við að vera stífmáluð og í búning fyrir son sinn.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig