Leikkonan geðþekka Sandra Bullock skildi við eiginmann sinn Jesse James árið 2010 eftir að upp komst að hann hefði haldið framhjá henni með mörgum konum.
Sandra segir að hún hafi grátið á gólfinu og að hjarta hennar hafi verið í molum eftir svik fyrrum eiginmanns síns. Hún vissi hreinlega ekki hvort hún gæti staðið upp aftur og haldið áfram en ákvað að gefa þessu tíma. Með tímanum lagaðist ástandið og hún kom sterkari til baka en hún þakkar einnig fjölskyldunni sinni fyrir að hafa staðið við bakið á sér í gegnum erfiðleikana.
Nokkrum mánuðum eftir skilnaðinn ættleiddi Sandra son sinn Louis og að hennar sögn er það honum að þakka að hún er hamingjusöm í dag. Sandra lítur allt öðruvísi á lífið núna heldur en hún gerði fyrir þremur árum. Hún er einstæð móðir og líf hennar snýst um litla Louis. Sandra segir að Louis hafi gefið sér nýja sýn á lífið og núna horfi hún á heiminn í gegnum hans augu.
Þegar þau fara saman út að leika sér þá gerir hún það sem Louis gerir og nýtur lífsins í botn með honum. Sandra segir einnig að henni hefði ekki dottið það í hug fyrir þremur árum síðan að hún væri búin að gera það sem hún hefur gert í dag, allt syninum að þakka.
Sandra segist núna elska lífið og tilveruna og njóta hvers augnabliks með Louis. Hún sé að læra að skemmta sér með honum, hana skorti alls ekki neitt og lífið sé fullkomið og gott.
Sandra er skemmtileg leikkona sem gekk í gegnum mikla erfiðleika og kom sterkari til baka, vel gert hjá þessari frábæru mömmu og flottu konu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig