Sandra Bullock hefur ekki tíma fyrir rómans og deiterí þessa dagana frekar en Katie Holmes enda vil hún bara hugsa um son sinn.
Hún segir að það sé fullt starf og vel það að vera mamma hans Louis litla sem hún ættleiddi árið 2010 en hann er þriggja ára á þessu ári. Að eltast við hann og sinna ferlinum gerir það að verkum að Sandra hefur engann tíma til að hitta karlmenn eða kanna markaðinn.
Hún sagði að hlutirnir gætu breyst þegar hann eldist en strákurinn er svo ungur núna að hún getur ekki gefið sér tíma.
“Það er allt innan svo þröngs tímaramma að ég bara hef ekki neina stund aflögu í aðra menn,” segir Sandra en bætir við að þetta muni nú líklegast breytast þegar tognar úr drengnum.
Þessi frábæra og flotta einstæða móðir flutti nýlega til Los Angeles frá Texas en þangað flutti hún eftir svæsinn skilnað og mikið framhjáhaldsmál Jesse James sem hafði þá verið með aðra í takinu heillengi.
Sandra segist ekki vera að fara til LA aftur svo hún geti djammað og verið með í partýum, þvert á móti ætlar hún að vinna af krafti.
“Fólkið sem þú sérð á öllum þessum partýmyndum getur bara tekið þátt í þeim af því það er ekki á fullu að vinna eins og við hin. Alvöru Hollywood leikarar eru ekki á kafi í skemmtanalífinu. Okkur finnst mest gaman að elda og borða saman í heimahúsum, burt frá ágangi papparassanna,” segir hún í viðtali við breska Hello.
“Ef þú kemur til með að rekast á mig í Hollywood þá er það ekki vegna þess að ég er að fara á djammið, nei, ég verð líklegast á leið í vinnuna eða með son minn á ‘play date’.”
Áfram Sandra! Hún er flott og glæsileg og ein uppáhalds leikkona Pjattsins.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.