Það er ótal margt sem hefur breyst í gegnum árin þegar kemur að samskiptum kynjanna en eitt af því er stefnumótamenningin.
Hér eru hreinlega absúrd ráð sem einhleypum konum voru gefin árið 1938. Eins og sjá má var í gríðarlega mörg horn að líta; Þú verður að vera í brjóstahaldara, mátt ekki kjafta of mikið við þjóninn og ekki fikta í eyrunum á deitinu… ef deitinu þínu á að líða þokkalega í gegnum þetta alltsaman og ef þú vilt eiga möguleika á að hitta hann aftur. Eins gott að haga sér stelpa!
Það fyndnasta er í raun að þetta voru alvöru ráð. Hér er ekkert verið að grínast. Hvað barnabörnunum okkar finnist svo um nútíma sambandsráð eftir tæp 80 ár?
Klæddu þig inni í herbergi og vertu klár þegar hann kemur; ekki láta hann bíða. Taktu svo á móti honum með brosi.
Ef þú þarft að nota brjóstahaldara, þá skaltu fara í hann! Ekki hamast við að girða þig og sjáðu til þess að sokkarnir séu ekki krumpaðir. Halló?
Kærulausar konur eru ekki aðlaðandi fyrir körlum. Ekki tala þegar þið eruð að dansa. Ef hann er að dansa við þig þá vill hann DANSA, ekki tala… (for kræing át lád).
Menn fíla það ekki þegar stelpa fær lánaðan vasaklút hjá þeim og klínir hann svo út í varalit. Þú átt að farða þig í einrúmi. Ekki þegar hann sér til.
Ekki nota spegilinn í bílnum til að laga farðann. Maðurinn þarf að nota spegilinn við akstur og það pirrar hann mikið að verða alltaf að snúa sér við til að sjá hvað er að gerast fyrir aftan.
Ekki vera að tjatta of mikið við þjóninn um hvað það var gaman síðast þegar þú mættir á þennan stað. Maðurinn sem þú ert með þarf að hafa alla athygli þína, ekki bara brot.
Ekki tala um fötin þín eða reyna að lýsa nýjum fötum fyrir karlmanni. Þóknastu honum frekar með því að ræða það sem hann hefur áhuga á.
Ekki sitja eins og fáviti og alls ekki láta hann gruna að þér leiðist, jafnvel þó að þér leiðist. Vertu hress og ef þú verður að vera með tyggjó, tyggðu þá með lokaðan munn.
Ekki vera að sýna honum atlot á almannafæri. Allar gælur fyrir framan aðra verða vandræðalegar fyrir hann svo láttu hann í friði og enga óþarfa snertingu.
Ekki tapa þér í tilfinningasemi eða reyna að fá hann til að segja eitthvað sem hann langar ekki að tala um með því að hræra í honum. Karlmenn eru ekki mikið fyrir grátandi konur eða að gráta sjálfir, hvað þá innan um aðra.
Ekki tala við aðra menn meðan þið eruð á deitinu. Það versta sem gæti svo komið fyrir er að þú verðir of full. Þá vill hann kannski aldrei hitta þig aftur.
Ekki drekka of mikið, hann ætlast jú til þess af þér að þú haldir reisn yfir allt kvöldið. Sumar stelpur virka klárari þegar þær hafa fengið sér aðeins, en flestar virka kjánalegar.
Ekki drepast!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.