Grínistinn Aziz Ansari fékk félagsfræðinginn og rithöfundinn Eric Klinenberg til liðs við sig til að skrifa með sér Modern Romance; djúpgreiningu á stefnumótamenningu í stafrænum heimi.
Greiningin kom út í júní í fyrra og er 288 blaðsíður.
Í meðfylgjandi myndskeiði útskýrir Klinenberg fyrir Business Insider hvernig það getur eyðilagt fyrir makaleit að notast við of mörg stefnumóta-öpp. Hann vill meina að í flestum tilfellum eyðileggi það líkurnar á að fólk finni sér þýðingarmikið samband til lengri tíma.
