Grínlaust þá hafa flestar stelpur lent í gaurum sem sleikja á okkur andlitið þegar þeir halda að þeir séu voða rómantískir.
Tungan gusast í allar áttir og slefið slufsast út um allt þar til þú biður þér vægðar… Einnig eru það drengirnir sem kyssa þurra mömmu kossa algjörlega off! Hvernig stendur á þessu? Eiga svona taktar að búa til einhvern losta, fjörlegheit og glamúr í rúminu? Frekar leiðinlegt!
Hér eru léttar leiðbeiningar til þeirra sem á þurfa á að halda:
1. Vertu rómantískur
Veldu stað og stund. Hallaðu höfðinu að henni og kysstu af ástríðu. Ekki rjúka á konuna bara óforvarendis í fermingarveislu eða á öðru óviðeigandi andartaki.
2. Ekki vera slísí náunginn
Passaðu upp á að hugsa fyrst um hana….svo um þig. Ef hún opnar munninn þá gerir þú það líka. Ekki sleikja bara eins og slanga í leit að mat eða hundur að klára af disknum. Ekki huggulegt!
3. Byrjaðu rólega
Byrjaðu á því að snerta fingur hennar. Leiða hana þar sem þið eruð stödd. Strjúka létt yfir bakið. Alls ekki grípa fast um rassinn á henni og hreinlega gleypa hana með munninum á þér! Ekkert sérstaklega aðlaðandi!
4. Vertu búinn að tannbursta þig
Ekkert eins ógeðslegt og andfýla og skítugar tennur. Svo stangaðu úr þeim, flossaðu og burstaðu áður en þú hefur leikinn!
5. Rómantík er málið
Fínt að spjalla við konuna, kynnast henni og hafa gaman saman. Karlmenn sem halda að þeir séu afar sexy eftir fjóra bjóra og fimm skot á barnum, standa gleiðir og hrokafullir við barinn eru ekkert sérstaklega aðlaðandi…Þú veiðir lítið á þeirri hegðun. Vertu frekar herramaður, töffari og karlmannlegur fram í fingurgóma! Vertu kurteis og nærgætinn. Hún á eftir að gleyma öllu öðru ef þessi atriði heppnast hjá þér!
Svo bara æfa sig því æfingin skapar meistarann! Kyssa rólega til að byrja með, hita konuna vel, tunguna rólega út og leika leika leika! Svo bara hoppsa…í upp í rúm og æfa tunguleikfimina betur!
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.