Stundum furða konur sig á undarlegum hlutum sem koma upp úr hinu kyninu. Framandi setningar sem gefa til kynna að kannski séu þeir, og verða alltaf, andlega sirka tólf ára. Hér eru nokkur gullkorn. Magnaðar setningar frá mönnunum okkar. Sumar alveg í takt við drengina í Klovn. Sjáðu t.d. þessa fyrstu:
Í síðustu viku sagðist kærastinn alltaf vilja stinga upp í mig typpinu þegar ég geispa. Nú verð ég stressuð ef ég er þreytt nálægt honum.
-Anna
Þetta finnst mínum um brjóst: Brjóstin á þér eru sönnun þess að guð sé til. Þetta er kraftaverk!
– Karen
Ég lagði svakalega mikið á mig til að losna við fjögur kíló og það tókst. Þegar ég tilkynnti kærastanum um þetta svaraði hann: „Hvað gerðiru? Fórstu að kúka?“
– Kristel
Kærastinn minn kom af klósettinu og tilkynnti mér þetta: „Ég var að skoða rassinn á mér í speglinum og tók eftir því að ég er með mjög flatan rass en hægri rasskinnin er mikið flottari en sú vinstri. Hvað finnst þér…?“
-Rut
Einu sinni sagðist hann fíla allt við mig, sérstaklega þessi stóru… með því átti hann við brjóstin á mér. Takk fyrir það vinur.
-Helga Guðrún
Ég var á leiðinni út meðan kærastinn minn sat við eldhúsborðið og gramsaði í veskinu mínu. Svo dregur hann upp innlegg, þefar af því og spyr hvort það sé ilmvatnsprufa.
-Nanna
Minn kallar brjóstahaldarana mína -brjóstajakka.
-Stella Kristín
Ef þinn heittelskaði snillingur hefur einhverntíma látið frá sér svona gullkorn væri gaman að deila þeim. Sendu línu á FB messenger 😉
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.