Ertu að leita að hinum eina sanna ? Ertu að deita og langar að vita hvort hann sé sá rétti ? Ef svo er þá gætu þessi 5 atriði frá MyDailyMoment hjálpað þér að meta hvort svo sé.
1. Þið virðið hvort annað
Virðing skiptir miklu máli þegar kemur að samböndum og er mikilvægt að báðir aðilar beri virðingu fyrir hvort öðru.
Þessi atriði hjálpa þér að finna út hvort hann virðir þig.
- Hann er tilbúinn til að gera málamiðlanir
- Hann hlustar á áhyggjur þínar og þegar þú tjáir tilfinningarnar þínar
- Hann tekur eftir því þegar það er eitthvað að og spyr þig hvort allt sé í lagi
- Hann metur skoðanir þínar
- Hann kann að meta þig
- Hann er stoltur af þér þegar þú nærð árangri
2. Hann ber þá eiginleika sem þú ert að leita að í maka
Yfirleitt veistu hvaða eiginleika þú sækist eftir í fari fólks og hvaða eiginleika þú vilt að maki þinn beri. Skrifaðu niður á blað þá eiginleika sem skiptir þig miklu máli og raðaðu þeim eftir mikilvægi. Strokaðu út þá eiginleika sem skipta kannski ekki höfuðmáli og einbeittu þér að þeim sem skiptir þig máli. Skildu eftir fimm atriði sem þú vilt að maki þinn uppfylli.
3. Þið deilið sömu gildum
Spurðu sjálfa þig að því hvaða skiptir þig málið þegar kemur að lífsgildum þínum. Það er mikilvægt að maki þinn sé með sömu grunngildi þar sem oft er erfitt að vera sveigjanlegur eða gera málamiðlanir þegar kemur að þeim þætti. Líttu á það sem hættumerki ef grunngildi ykkar eða lífsgildi eru ekki þau sömu og mundu að þú átt ekki að þurfa breyta þér fyrir maka þinn.
4. Hlustaðu á innsæið þitt
Ekki hunsa innsæið þitt, hlustaðu á það, en ekki láta það ákveða fyrir þig, stundum höfum við rétt fyrir okkur þegar kemur að innsæi og stundum ekki. Láttu innsæið þitt leiða þig áfram hvort hann sé sá eini rétti en ekki stjórna þér.
5. Þú getur verið þú sjálf í kringum hann
Mikilvægt er að þú getir verið þú sjálf þegar þú ert með maka þínum. Þú átt aldrei að þurfa breyta persónuleika þínum fyrir maka þinn. Það er mikið frelsi sem felst í því að geta verið sá sem maður er og það að vita að hann elskar þig fyrir það sem þú ert er ómetanlegur þáttur í sambandi.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.