Bella verður að eignast jólakærasta!
Jólin eru ekki aðeins hátíð barnanna; Þegar aðventan skellur á taka rómantísk hjörtu að slá örar – allt er fegurra í desemberrökkrinu og hlýlegum ljósaskreytingum.
Og þörfin fyrir nánd og tilfinningaleg tengsl eykst í samræmi við þessa einstöku stemmningu.
Fyrir pör er svo margt skemmtilegt hægt að gera sem tengist þessum árstíma; Fara á bókaupplestur, tónleika, leiðast niður skreyttan Laugaveginn og smakka jólabjór á ýmsum krám eða ylja sér í kuldanum og horfast djúpt í augu yfir kryddaðri jólaglögg … Eða er glöggin kannski ekki lengur nógu smart?
Heitfengar og rómantískar konur verða að fá að njóta sín sem ástkonur á aðventunni. Þá eru konur eins og Bella með augastað á dýrindis ilmvötnum, silkiundirfatnaði, blúndum, glitrandi skrauti, spennandi bókum og angurværri tónlist. Það er líka svo dásamlegur og óralangur höfuðverkur að velja gjöf handa HONUM.
Við erum að tala um hárauðan varalit og dökklakkaðar neglur, kertaljós, rauðvín og gleði. Heitir kossar, ilmur af greni og kókosolíu á kroppinn – ykkar beggja.
Gleðilega og rómantíska aðventu, takk!
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.