Varstu að byrja í sambandi og ertu ekki alveg viss hvar það stendur eða hvort hann er raunverulega skotinn í þér? Hér koma 8 ástæður sem segja til um hvort hann er hrifinn af þér eða ekki.
1. Hann starir á þig
Já ef kærastinn starir á þig í partý eða annarsstaðar og er ekki glápandi á rassana eða brjóstaskorur hjá öðrum konum þá er hann yfir sig hrifinn af þér og hugsar örugglega með sér hversu heppinn hann er að þú sért kærastan hans.
2. Hann hofir í augun þín
Margir karlmenn eru ekki mikið fyrir beint augnsamband eða sýna mikið af tilfinningum en ef hann horfir beint í augun þín án þess að brosa eða glotta og horfir með hrifningu þá er hann að tjá ást sína.
3. Hann kaupir mat sem þér finnst góður
Já, ísskápurinn er ekki lengur fullur af skyndibita eða hinum “týpíska” piparsveinamat heldur er hann fullur af því góðgæti sem að þér finnst gott. Kallinn er að standa sig núna!
4. Dótið þitt er heima hjá honum
Fötin þín, tannburstinn, skór og snyrtivörur eru heima hjá honum án þess að það fari í taugarnar á honum, það er gott merki því þá er honum sama þó að vinir hans og foreldrar sjái að hann sé á föstu.
5. Hann talar um framtíðina
Hann er ekki bara að tala um það sem er að gerast í næstu viku heldur jafnvel næstu árin eða mánuðina, honum langar svo sannarlega að eyða góðum tíma með þér og ef þú ert inn í framtíðarplönum hans þá er það gott mál.
6. Hann er í peysunni sem þú gafst honum.
Menn geta verið ansi vandlátir á föt og ef hann klæðist fatnaði sem þú gafst honum (jafnvel þó honum líki hann ekki) þá er það merki um að hann sé mjög hrifinn af þér og vilji halda sambandinu áfram.
7. Hann vill láta sjá sig með þér á almannafæri
Hann er ekki að leynimakkast um miðja nótt með þér heim heldur eruð þið saman úti að borða eða jafnvel að versla og hann vill halda í höndina á þér, já kallinn er skotinn -heldur betur!
8. Honum er alveg sama þó þú svarir í símann hans.
Ef honum er alveg sama þó þú svarir símanum hans þá treystir hann þér fullkomlega og skammast sín ekkert fyrir sambandið (eða er bara yfir sig ástfanginn) vonandi ertu samt búin að hitta tengdó áður en þú svarar símanum!
Karlmenn geta verið flóknar verur en ef nýi vinur þinn er ekkert að flækja málin og gerir allt eða flest af ofangreindu þá máttu vera nokkuð viss um að hann sé ekkert að plata þig.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.