Kannski þarftu að horfast í augu við það að sæti, fyndni og spennandi en jafnframt viðsjáli maðurinn sem þú telur vera kærastann þinn, meinar ef til vill ekki neitt með sambandinu.
Hann heldur þér í ákveðinni fjarlægð vegna þess að hann er nýkominn úr erfiðu sambandi. Hann er ekki tilbúinn að binda sig strax aftur en hefur alls ekkert á móti því að skemmta sér svolítið meðan hann sleikir sárin …
Samband eins og þetta getur verið mjög gefandi og náið – meðan það varir. Kynlífið er frábært. Naumt skammtaðir ástarmolarnir sem falla af borðum hans verða vanabindandi. Þess vegna heldur þú þetta út. Þú trúir því í raun og veru að einn góðan veðurdag opnist augu hans og hann sjái að þú ert hin eina sanna. Þú þurfir bara að sýna þolinmæði.
En líklega er betra fyrir þig að horfast í augu við raunveruleikann. Það er öllu líklegra að hann fari með þolinmæðina þína, ásamt flotta bindinu sem þú gafst honum, beint í fangið á næstu konu.
Hér koma nokkrar vísbendingar um að sambandið sé í rauninni ferðalag eftir langri blindgötu. Ef þú kannast við fleiri en 3 þeirra skaltu flýta þér að bakka út úr sambandinu. Vertu heiðarleg við sjálfa þig.
1. Þú ert með honum á föstudögum eða laugardögum
…Aldrei alla helgina. Karlmaður sem elskar þig og girnist hagar sér ekki þannig, þó ekki væri nema hormónanna vegna!
2. Gefur lítið sem ekkert
Hann heldur því fram að gjafir eins og blóm og ilmvatn séu lítillækkandi fyrir konur.
3. Enn að hitta exið
Hann heimsækir ennþá fyrrverandi kærustu sína, eða hringja í hana og spjalla í síma eða á Facebook. Þú veist fyrir víst að hann sefur ekki hjá henni, en ef hann getur ekki sagt skilið við fortíðina, þá lofar framtíðin ekki góðu.
4. Lítið um kynlíf
Þið eruð svo að segja alveg hætt að stunda kynlíf. Getur þú hugsað þér nokkuð verra en að vera ,,góður vinur‘‘ karlmanns, sem áður gat ekki beðið eftir því að rífa utan af þér fötin? Þarftu sem sagt á fleiri vinum að halda?
5. Hann þarf svigrúm
Þegar hann er þreyttur vill hann slaka á í einrúmi fjarri … þér. Ef hann segist þurfa meira svigrúm, skaltu gefa honum það – með því að losa þig við hann sem allra fyrst!
6. Engin plön, allt opið
Það er fimmtudagskvöld og ennþá hefur þú ekki hugmynd um hvort þú kemur til með að hitta hann um helgina. Hann er ekki að reyna að koma þér skemmtilega á óvart. Hann er einfaldlega að halda öllum möguleikum opnum.
7. Sífellt að vinna
Þú ert alltaf að segja vinum þínum hvað hann vinni mikið og hvað það sé frábært að vera með manni sem veitir þér svona mikið sjálfstæði. Bull og vitleysa. Þú ert einfaldlega að afsaka hann. Þú getur reynt að blekkja vini þína en þú getur aldrei blekkt sjálfa þig. Ekki endalaust.
8. Þér er ekki boðið
Honum er boðið í brúðkaup eða fermingu í fjölskyldunni og býður þér ekki með. Kannski getur hann ekki hugsað sér að mæta öllum forvitinisaugunum en ef þið hafið verið saman í meira en þrjá til sex mánuði – komdu þér í burt sem allra fyrst. Þetta er ekki eðlilegt.
9. Þú ert ekki kærasta eða kona…
Nei. Hann kynnir þig sem “vinkonu” sína fyrir fólki, ef hann þá fer yfirleitt mikið með þér út á meðal fólks.
10. Haldið frá vinum og vandamönnum
Hann hefur ekki kynnt þig fyrir bestu vinum sínum. Ef hann elskaði þig í raun og veru þá gæti hann ekki stillt sig um að monta sig af þér.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.