Þetta er sama fólkið, í sömu stellingu og myndirnar eru teknar frá sama vinkli en samt er eins og um gjörólíkar manneskjur sé að ræða.
Í okkar heimi þar sem allt snýst um hvernig ‘týpa’ þú ert er magnað að gera samanburð á þessum myndum. Hér erum við alltaf með sama parið sem svo breytir um fatnað og stíl og sendir um leið frá sér gerólík skilaboð til veraldarinnar í kring.
Með þessu er óhætt að segja að fötin séu hálfgerðir galdrar og það er greinilegt að hver og einn getur verið sá eða sú sem hann eða hún vill, með örlitlum tilfæringum. Þetta eru hamskiptingar… Stórmerkilegt!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.