Sjóliða tískan heldur áfram inn í vorið en hún einkennist af dökkbláum og rauðum lit, röndum, akkerum og gullhnöppum.
Flott og skemmtileg tíska sem hægt er að leika sér mikið með. Rendurnar eru mitt uppáhald en akkerin eru líka skemmtileg tilbreyting.
En alltaf er hægt að fara yfir strikið og maður þarf að passa sig að ofgera ekki svo maður líti nú ekki út fyrir að vera á leið á Hrekkjavökuball 😉 Hægt er að fá sailor-föt í flestum tískuverslunum og í búðum á netinu.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.