Það eru fáar stelpur sem vita ekki hver Taylor Launter er. Flestir sem fylgjast með kvikmyndum, tímaritum, spjallþáttum eða fletta í gegnum slúðurblöðin hafa eflaust séð þetta fagra andlit því þessi ungi maður fer ekki framhjá neinum. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt í Twilight vampírumyndunum sem hafa gert flestar unglingsstelpur trylltar í vampírur og úlfa.
Taylor er ansi svalur strákur og líka með svona flotta magavöðva.
Hér er Taylor komin í fyrirsætuhlutverkið og farin að pósa í GQ tímaritinu: ég verð að segja hann er bara frekar flottur strákurinn og ber haustfatnaðinn vel.
Ljósmyndir: Mario Testino fyrir GQ.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.