Karlmenn með fallega snyrt skegg geta sannarlega verið augnayndi. Það er nefninlega eitthvað við skeggið sem gerir þá leyndardómsfulla og um leið meira karlmannlega.
Hollywood gaurarnir eru að sjálfsögðu með puttann á púlsinum þegar kemur að andlitshári og skarta því fyrir hin ýmsu hlutverk eða bara til gamans (kannski stundum til að pirra dömuna sína, hver kannast ekki við það?).
Sumir virðast fágaðri með skeggið sitt, líta út fyrir að vera aðeins eldri en vanalega og svo þegar skeggið er hofið þá yngjast þeir um fjöldamörg ár og það getur tekið smá tíma að venjast þeim á skeggsins.
Hér að neðan eru nokkrir sætir, ungir og aðeins eldri frá Glysborginni, skoðið og njótið og ef þú færð ekki nóg þá eru fleiri HÉR. Mmm…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig