Litríkar og fallega mynstraðar sokkabuxur geta algjörlega gert gæfumuninn þegar við erum komnar í flottann kjól á leiðinni út á djammið.
Ég á heilann helling af sokkabuxum og finnst gaman að breyta til og fara í litríkar einn daginn, mynstraðar hinn daginn og svo er nauðsynlegt að eiga allavega tvennar góðar svartar sokkabuxur.
Tískan í sokkabuxum í dag einkennist af blómamystruðum sokkabuxum, blúndum, doppum, hjörtum, slaufum og allskonar röndum. Namm namm elska þessa tísku!
Það er hægt að fá fallegar sokkabuxur í:
Topshop
Cobra – sokkabúð í kringlunni
KronKron
Gyllta kettinum
Hagkaup
og mörgum öðrum búðum…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.