
Sæta svínið, nýr og spennandi Gastro pub opnaði í Hafnarstrætinu í dag. Nánar tiltekið í gamla, rauða fálkageymsluhúsinu.
Okkur finnst mjög mikilvægt að vekja athygli á því að matseðilinn verður á hálfvirði fyrir þá sem koma og smakka fyrstu dagana, semsagt á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag 23 – 24 mars.
Bæði í hádeginu og á kvöldin, halló, halló, halló!!!
Sæta svínið er Gastropub þar sem þú getur droppað við í hádeginu, í eftirmiðdaginn eða á kvöldin í drykk og hágæða mat í skemmtilegri og afslappaðri stemningu.
Þau leggja áherslu á bragðgóðan mat búin til úr íslenskum fyrsta flokks hráefnum á góðu verði og gott úrval af bjór, víni og kokteilum til að njóta með matnum.
Til dæmis eru 10 bjórar á krana svo bjórelskendur vita hvert þau eiga að fara.
Og við erum ekki bara að tala um allskonar bjór heldur líka allskonar meira góðgæti…

Á matseðlinum er fullt af spennandi smáréttum og líka stærri réttum… allskonar gómsæti; ferskur fiskur, andasalat, lambaskanki, short rib burger, svína t-bone steik og hrossalund svo fátt eitt sé nefnt. Nú svo eru það eftirréttirnir sem eru mjög skemmtilegir og í raun bara svo spennandi að það væri eitthvað að manni að fara ekki að skoða Sæta Svínið.
Til dæmis er hægt að fá al- íslenska rjómabollu allt árið og frábæran SMÁKÖKU PLATTA sem á er Snickers smákaka, sítrónubaka, lakkrístoppar, Jakobsmoli, míní kleinur, míní rjómabolla og auðvitað fylgir með mjólkurglas 🍶
Skilgreiningin á Gastropub:
Hágæða Matur + pöbbstemning = Gastropub, með öðrum orðum, pöbb sem býður upp á hágæða mat og drykk. ATH: Opið frá 11.30 – 23.30 alla daga

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.