Bikinítískan 2012
Bikiní með hring á buxunum hafa verið áberandi þetta sumarið og eins hlýralausir haldarar.
Þá höfum við tekið eftir hekluðum bikiníum og svo eru auðvitað neon litirnir vinsælir í baðfötum sem öðru enda fer skærbleikur eða gulur ótrúlega vel við fallega brúna húð. (HÉR er gallerý sem við birtum í gær með undirfötum frá VS).
Þá eru áberandi buxur með síðum böndum sem verða einskonar kögurskraut á þeim og pastel litir sjást líka sem geta gefið svolítið chic yfirbragð.
RÁÐ: Ef þú ert að fara á ströndina borgar sig að taka með nokkur bikiní til skiptanna… annars myndast of áberandi far á bæði bossa og bringu…
Smelltu hér í gegnum gallerý af því nýjasta frá Victorias Secret – við völdum það flottasta… 😉
___________________________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.