Háværar raddir vestanhafs halda því fram að íslandsvinurinn Ryan Gosling og þokkadísin Eva Mendes séu tilbúin að láta leiðir skiljast og hætta við brúðkaup sitt.
Það á að vera Eva sem sagði kyntröllinu upp en þrátt fyrir að hann hafði allt sem kona á að geta óskað sér fannst henni ‘eitthvað vanta’.
Ryan á að hafa viljað fá meira út úr sambandinu þeirra en Eva, sem er nokkuð eldri en Ryan eða 39 ára, hefur verið eitthvað hrædd við að binda sig:
“Kannski er það bara skuldbindingarfælnin í henni sem gerir þetta að verkum en Ryan hefur viljað ganga lengra með sambandið en hún. Svo áttaði hann sig á því að þetta virtist ekki vera að fara að gerast. Því meira sem hann vildi alvöru í þetta því meira dró hún sig til baka og smátt og smátt fór hann bara að gefast upp og gaf sig þá síður í sambandið,” segir heimildarmaður tímaritsins OK í viðtali um málið.
Ef þetta stendur allt heima geta einhleypar og vongóðar íslenskar dömur glaðst því eflaust kemur drengurinn hingað aftur í heimsókn, – og þá væntanlega á lausu?
Spurning hvort það verði þá ekki röð fyrir utan bardagaklúbbinn Mjölni en Ryan æfði þar daglega meðan hann var hér við að klippa mynd í sumar.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.