Íslandsvinurinn Ryan Gosling virðist ekki vilja vera einn í langan tíma en Pjattið sagði einmitt frá því hér að hann og Eva Mendes væru hætt saman.
Núna eru sögusagnir á kreiki um að Ryan og hans fyrrverandi, Rachel McAdams (35), (hver man ekki þeim í eftir The Notebook!) séu farin að hittast aftur og að þau hafi eytt talsvert miklum tíma saman undanfarið.
Rachel og Ryan hafa þó ekki sést mikið saman og litlar sannanir eru fyrir endurvakningu sambandsins hjá þeim en Ryan og Eva eru hætt saman (for good)?? En Rachel er hinsvegar einhleyp og Ryan er sjúklega sætur -Það ætti að vera nóg ekki satt?
Mæ ó mæ, ég er forvitin núna svo ekki sé meira sagt, ætli að “draumaparið” sé byrjað saman aftur? Við skulum bíða og sjá!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig