Pjattið er alltaf með puttan á púlsinum þegar kemur að fræga fólkinu, og þá sér í lagi þegar það er á Íslandi en við höfum öruggar heimildir fyrir því að hinn ofursæti Ryan Gosling sé ekki á leiðinni neitt af klakanum í bráð.
Að sögn heimildarmanna okkar ætlar kappinn kynþokkafulli að vera hér á okkar farsældar fróni í að minnsta kosti 10 vikur og er búin að leigja sér íbúð.
Við getum því sannarlega kallað hann Íslandsvin því sjaldnast stoppa þessar elskur svona lengi. Reykjavíkurdætur mega því vænta þess að sjá strákinn í Bónus og kannski sundi ef við erum heppnar.
Ryan Gosling (32) er hér á landi til að klippa myndina How To Catch a Monster en það er Valdís Óskarsdóttir sem fær að eyða ómældum tíma með bjútíinu inni í klippiklefanum næstu misserin. Skál fyrir Valdísi! Virðing.
Fyrst Ryan ætlar að vera svona lengi með okkur eru miklar líkur á að drengurinn fái kærustuna sína til landsins, hina eldheitu Evu Mendez og þá mun karlfólkið á Íslandi eflaust tapa sér eins og við stelpurnar yfir Ryan því ekki margar konur jafn þokkafullar og hún Eva.
Við hér á Pjattinu munum bíða spenntar eftir símtölum frá okkar heimildarmönnum og færa ykkur fréttirnar. Fylgist með en þangað til má skoða þetta safn hennar Fanneyar.
Fanney Pjattrófa er mikill aðdáandi Gosling og tók HÉR saman nokkrar staðreyndir um strákinn og fullt af fallegum myndum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.