Villi prins sagði fyrir stuttu að hann væri nú tilbúin að fara að stofna fjölskyldu en hann langar að eignast tvö börn með konu sinni Kate.
Parið myndarlega var nýlega á ferðinni í Singapore þar sem skólakrakkar spurðu þau ótal spurninga en meðal þeirra var spurningin um fjölskyldu.
Vilhjálmur hefur hingað til verið upptekinn að sinna skyldustörfum fyrir breska herinn en losnar bráðum frá því starfi og flestir reikna með að þá verði bæði klár í slaginn en bæði eru þau orðin þrítug.
Þau fengu allskonar skrítnar og skemmtilegar spurningar meðan á ferðalaginu stóð en ein þeirra var m.a. hvaða ofurkrafta hann gæti óskað sér að hafa. Vilhjálmur sagði þetta frekar erfiða spurningu en endaði með að svara því að líklegast vildi hann bara vera ósýnilegur. Þá var Kate spurð að því sama og sagðist hún einnig helst vilja vera ósýnileg, því annars gæti hann nú læðst upp að henni óséður og látið henni bregða.
Parið heimsótti bæði blómagarð og breskan skóla í Singapore en krakkarnir í skólanum voru yfir sig hrifin af Kate og Vilhjálmi og hrópuðu hátt:
Will is brill, Kate is great!
Kate fannst heimsóknin líka frábær og sagðist vonast til þess að geta komið aftur í heimsókn þegar krakkarnir væru orðnir stærri.
Hún var flekklaus að vanda í þessari heimsókn og klæddist fallegri dragt frá Alexander McQueen og ‘wedes’ skóm frá Coco.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir og myndband úr heimsókninni.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.