Mér finnst alltaf skemmtilegt að kíkja á lookbook.nu og fá innblástur fyrir fataskápinn minn.
Þá er ég voða hrifin af kvenlega-rokkara lúkkinu þessa dagana. Það skemmtilega við lookbook er að þar finnur þú myndir af öllum týpum og getur því hver sem er fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér eru nokkrar flottar rokkarastelpur sem ég fíla…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.