Robert Pattinson er skotinn í Katy Perry og finnst hún heitari en allt.
Robert sást daðra við Katy í eftirpartí fyrir nýjustu kvikmynd hans, The Rover, í Los Angeles í síðustu viku, áður en hann sagði við vini sína að hann væri hreinlega skotinn í söngkonunni.
Vitni af daðrinu á W Hótelinu sagði við Page Six: „Þau döðruðu eins og enginn væri morgundagurinn.
Á einum tímapunkti sagði hann við vin sinn á barnum að hún væri virkilega heit og síðan kinkaði hann kolli til Katy.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau hittast því í apríl síðastliðnum sáust þau kyssast á Coachella Valley tónlistarhátíðinni í California þar sem þau eyddu allri hátíðinni saman.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.