Já! Twilight sykurpúðarnir eru hætt saman og vinir Roberts segja að það sé núna fyrir fullt og allt en draugur framhjáhalds hennar var alltaf til staðar.
Robert er fluttur frá Kristen, hefur sjaldan eða aldrei verið jafn hamingjusamur og er frelsinu feginn eða hvað? Katy Perry og Robert hafa sést mikið saman eftir að þau Kirsten slitu sambandinu og margir vilja meina að hún sé ástæðan fyrir því að Kristen og Robert hættu saman.
Katy studdi aldrei ákvörðun Rob að byrja aftur með Kristen en hún hafði enga trú á því að samband þeirra myndi lifa af eftir framhjáhaldið en Katy var afar harðorð í garð Kristen. Sagði hana illa innrætta fyrir að sundra fjölskyldu en Rupert (leikstjórinn sem Kristen hélt framhjá með) átti þá eiginkonu og barn og þau eru skilin núna.
Robert og Katy hafa alltaf verið góðir vinir. Þegar þau fóru saman á tónleika án Kristen í síðasta mánuði mun Kristen hafa fengið nóg og þannig hófst rifrildi sem leiddi til sambandsslitanna. Robert flýgur um á bleiku skýi þessa dagana, alsæll með lífið og grætur sambandið þeirra ekki neitt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig