Robert Pattinson er að vaxa úr grasi sem leikari en hann er ólmur í að fólk fari að taka sig alvarlega og líti á sig sem fullorðinn einstakling.
Robert, sem er 27 ára gamall, ætti nú að vera kominn í fullorðinna manna tölu fyrir löngu síðan en hann segir að þessi unglingastimpill sé á sér eftir Twilight séríuna en það voru aðallega unglingsstúlkur um allan heim sem héldu ekki vatni yfir myndunum og dýrka og dá Robert.
Robert er orðinn talsmaður fyrir tískurisann Dior og finnst það hjálpa sér að vera aðeins meira fullorðins og sýna fólki að hann er að nálgast þrítugsaldurinn. Það virðist samt sem áður vera erfitt að taka Twilight stimpilinn af en það sé að koma smátt og smátt að fólk átti sig á því að hann getur leikið eitthvað annað en vampíru – Að hann sé “alvöru” leikari.
Leikarinn stígur ósjaldan á rauða dregilinn en þó að skiptin á rauða dreglinum séu orðin þetta mörg þá segist hann alltaf kvíða því að mæta á frumsýningar eða aðra viðburði þar sem að hann þarf að vera fyrir framan myndavélarnar. Þegar hann sé síðan kominn á rauða dregilinn sjálfan þá sé þetta ekkert mál en sama dag er hann kolklikkaður, æðir um öll gólf, fær illt í magann og er mjög stressaður.
Robert segir þetta vera óöryggi, hann sé ekki sá best vaxni í bransanum, ekki með sixpack og hreinlega hatar að fara í ræktina. Hann hefur engan áhuga fyrir því að klæða sig úr bolnum til að sýna á sér mallakútinn og vill frekar bara detta almennilega í það í þessum partýum og skemmta sér vel.
Robert er pínu fyndinn gaur. Þó hann sé ekki með sixpack þá er hann dýrkaður og dáður af mörgum kvenmönnum um allan heim og ég held að hann þurfi ekkert að hafa neinar áhyggjur af því að hann sé ekki sexý eða nógu heitur!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig