Rob Kardashian hefur ekki talað við systur sína Kim síðan hún gifti sig í síðasta mánuði og hunsar allar tilraunir Khloe þegar hún reynir að hafa samband við hann.
Rob mætti ekki í brúðkaup Kim og Kanye West og hefur ekki áhuga á að reyna að bæta sambandið við systur sína.
„Hann hefur enga ástæðu til að tala við Kim. Þau hafa verið ósátt í langan tíma,“ sagði heimildarmaður við RadarOnline.
„Kim hefur ekki einu sinni reynt að tala við hann síðan hún kom heim úr brúðkaupsferðinni. Khloe hefur sent honum smáskilaboð og skilið eftir talskilaboð sem hann svarar ekki.“
Rob flaug til Parísar til að vera viðstaddur brúðkaup Kim en eftir að hafa lent í rifrildi við hana, þar sem hún gerði grín að líkamsþyngd hans, flaug hann aftur til Los Angeles í staðinn fyrir að mæta í brúðkaupið hennar á Ítalíu.
„Kim og Rob hafa ekki talast lengi við. Hún segir hann latan og segir hann sverta nafn fjölskyldunnar vegna líkamsþyngdar sinnar.“
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.