Eldhúsgyðja Íslands, Friðrika Hjördís Geirsdóttir, eða Rikka eins og hún er alltaf kölluð, er komin á Instagram.
Þar birtir hún myndir úr daglega lífinu en líka af dásamlega freistandi réttum sem hún töfrar fram í eldhúsinu. Pjattinu hefur borist til eyrna að Rikka sé nú á fullu að undirbúa næstu matreiðslubók sem kemur út á vegum Hagkaupa og við sem eltum hana á Instagram erum þegar byrjaðar að sjá hverju von er á.
Að minnsta kosti eigum við eftir að fá uppskriftir að einstaklega girnilegum kökum og fleiru sem hreinlega kitlar bragðlaukana ef marka má sýnishornin á Instagram.
Slóðin hennar Rikku á Instagram er: http://instagram.com/fridrikahg.
Gerðu follow og fáðu að kíkja á bak við tjöldin hjá þessari fjölhæfu sjálfstæðu móður sem er ekki bara sjónvarpskona, eldhúsgyðja og matgæðingur heldur einnig afbragðs matarljósmyndari!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.