Óheilbrigði lífstíll Rihönnu virðist vera farinn að ná að bíta hana í rassinn því söngkonan gerir í því að mæta of seint á tónleika sína.
Rihanna er sem stendur í tónleikaferð sem heitir “Diamonds” og hún djammar, djúsar og reykir á hverju einasta kvöldi og margir hafa áhyggjur af því hvar þetta endi allt saman ef hún heldur þessu áfram.
Tónleikaferðin er sem stendur í Evrópu og fyrir stuttu mætti Rihanna tveimur tímum of seint á tónleika. Ofan í kaupið virtist hún “mæma” allan tímann og var í afar annarlegu ástandi að sögn tónleikagesta.
Að sjálfsögðu varð allt vitlaust og margir kölluðu hana metnaðarlausa og sjálfumglaða tík fyrir að koma svona fram við aðdáendur sína sem höfðu borgað fúlgu fjár til þess að sjá hana koma fram ásamt því að bíða í tvo tíma. Twitter logaði og það virðist sem margir séu ósáttir við framkomu Rihönnu og vilja að hún fari að taka sér taki áður en illa fer.
Við skulum vona að þessi hæfileikaríka söngkona rétti úr kútnum og muni gera betur á næstu tónleikum sínum. Annars gæti stefnt í að hún fari sömu leið og Amy Winehouse, þetta lofar amk ekki góðu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig