Söngkonan Rihanna hneykslar lýðinn enn eina ferðina. Í þetta sinn var hún þó fullklædd en tók myndir í leyfisleysi fyrir framan helgan stað.
Staðurinn sem um ræðir er í Abu Dhabi, nánar tiltekið fyrir framan Mosku en þar koma fleiri þúsund manns saman til þess að biðja og myndatökur eru stranglega bannaðar í moskunni sem og í kringum hana.
Ansi margir aðdáendur söngkonunnar trylltust eftir þetta athæfi hennar en hún klæðist svörtum fatnaði frá toppi til táar en passar sig að vera með varalit og gyllt skart. Rihanna birti myndirnar sínar á Instagram hjá sér og ekki voru allir sáttir!
Það sem áhorfendur sögðu var meðal annars: “Rihanna lítur vel út, því er ekki að neita en hún er ekki að hylja höfuð sitt vegna trúarinnar heldur bara fyrir tískuna”. Annar aðdáandi sagði:
“Að Rihanna skuli pósa fyrir framan Sheikh Zayed Moskuna er bara rangt! Hver hleypti henni eiginlega inn??
Söngkonan hélt áfram að halda áhorfendum sínum óánægðum þegar hún hélt næstu tónleika en þeir voru í Jóhannesarborg. Þá sökuðu áhorfendur hana um að “mæma” en það mun ekki vera í fyrsta sinn sem söngkonan gerir það!
Fleiri aðdáendur hafa kvartað yfir háu verði á tónleikana því söngkonan virðist ekki standa undir væntingum á þeim. Hvað næst? Ætli að daman sé búin með hneysklunarkvótann? – Nei, ég stórefa það!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig