Söngkonan Rihanna er blekóð eins og það kallast á fagmálinu, það er að segja, hún virðist ekki fá nóg af húðflúrum.
Nýjasta útspilið var að fá sér tattú á fingurna en það var gert með gamaldags aðferð sem byggist á því að hreinlega hamra blekið niður í húðina.
Rihanna hló og grét á víxl meðan hún var flúruð enda er aðferðin ekkert grín. Fingurnir eru líka mjög viðkvæmir enda margir taugaendar þar. Hugmyndina fékk Rihanna þar sem hún var á ferðalagi í Nýja Sjálandi en hún ákvað að fá sér áfastan minjagrip, hefðbundið Maori húðflúr beint á hægri höndina.
Hvort þetta er fallegt og útkoman góð má svo vissulega deila um.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ePqfnkzAQjQ[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.