Hún Rihanna er frekar spes stelpa sem hefur ekki farið leynt með sínar villtu hliðar.
Nýjustu fréttir herma að henni finnist beinlínis gott að fara í brasilískt vax og afþakki allar leiðir til að deyfa sig. Þetta á ekki að koma mjög á óvart því Rihanna hefur áður sungið um líkamlegan sársauka í laginu ‘S&M’ en þar söng hún um ánægju sína af smá pínu.
Það voru starfsstúlkur á sérstakri vax-stofu sem sögðu frá því hvernig Rihanna afþakkaði deyfikrem og fór beinlínis að hlæja þegar meðferðaraðilinni mætti með kremið.
“Hún sönglaði bara og las meðan hún var í meðferðinni og virtist ekki finna neitt fyrir neinu,” sagði starfsstúlkan og bætti við. “Flestum konum finnst ferlega vont að fara í vax en ekki henni. Hún sagði bara….
Nei, alls ekki, ég elska sársauka. Mér finnst hann góður…
Á meðan Riri lá á vaxbekknum reyndu aðrar starfsstúlkur á Fuzz Wax Bar að hlera hvort hún gólaði eða hvað hún sagði en það heyrðist ekkert nema bara söngl og rólegheit.
“Hún virtist bara vera að fíla sig. Lá spök og sönglaði meðan við vorum allar í hláturskasti hinu megin við vegginn.”
Rihanna hætti nýlega með on/off kærasta sínum Chris Brown en slúðrið vestanhafs segir að hann sé aftur byrjaður með sinni fyrrverandi Karrueche Tran. Ætli hún fari í vax?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.