Söngkonan Rihanna virðist vera komin með nóg af því að djamma og djúsa eftir tónleika og jafnvel fyrir þá líka.
Söngkonan, sem er 25 ára gömul, segir að hún sé búin að fá nóg af partýstandi og er að eigin sögn farin að róast töluvert. Núna gerir hún minna af því að djamma en fyrir nokkrum mánuðum sem er gott, því fólk, aðdáendur og aðrir, voru byrjuð að hafa áhyggjur af lifnaðarháttum dömunnar.
Hún segist vera komin í sóttkví, sé hætt að fara út á galeiðuna og hreinlega hati allt djamm.
Að hennar sögn eru það hugsanlega háu hælarnir sem hún gengur í sem gera það að verkum að hún fær nóg eftir smástund í partý, hún nenni ekki að standa bara eins og staur á háum hælum og fá illt í bakið.
Rihanna segir einnig að það geti hugsanlega verið tónlistin sem henni líki ekki við. Það er alltaf sama klúbbatónlistin allsstaðar og henni finnist hún vera orðin leiðinleg!
Söngkonan segir að við þurfum á fleiri plötusnúðum að halda sem búa til sína eigin tónlist til að fá meiri fjölbreytni í tónlistarbransann og skemmtanalífið.
Þó Rihanna sé komin með nóg af partýstandi þá leiðist Pjattrófunum ekki að skella sér út á lífið annað slagið, skál í boðinu og góða helgi! Og ef þú heitir Anna, þá er um að gera að djamma þessa helgina. Lestu meira HÉR.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig