Rihanna er ekki feimin stúlka og stillir sér gjarna upp fáklædd á Instagram en í þetta sinn lét hún mynda sig nánast allsber fyrir karlatímaritið GQ.
Tilefnið af myndatökunni er 25 ára afmæli tímaritsins en Rihanna er jafnaldra þess. Forsíðan er í anda grísku gyðjunnar Medúsu sem hafði snáka í staðinn fyrir hár. Söngkonunni finnst þessi mynd sjúklega flott og ,,tweet-aði” söngkonan um myndina til þess að vekja enn meiri athygli á sér og tímaritinu.
Rihanna er einnig með snák vafinn um hálsinn og á lítilli glimmerbrók en brjóstin hylur hún með höndunum.Flestum hefðu þótt óþægilegt að hafa snák í fanginu en Rihanna stillir sér upp eins og fagmaður.
Önnur mynd sýnir Rihönnu allsbera, sleikjandi snáka og með vígtennur. Frekar spes mynd en stílistinn hlýtur að vita hvað hann var að gera… þetta á örugglega að tákna eitthvað.
Já hún Rihanna verður seint talin spéhrædd!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig