Lína Siggu Maiju á RFF kom mér skemmtilega á óvart
Sigga Maija var sú sem ég var einna spenntust að sjá á RFF. Hún kom á óvart með línu sinni sem var öðruvísi en skemmtileg. Háar klaufar, blár og rauður í bland við svarta litinn og gróf og öðruvísi print.
Mínar uppáhaldsflíkur voru þessar hér…
Svartur kjóll, grænn prjónakjóll og þessar súper flottu leðurbuxur með háum, grófum rennilás að aftan!
Sjáið fleiri myndir…
Myndir: Birta Rán
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com