Reykjavík Fashion Festival (RFF) fer fram næstu helgi en þá munu átta fatahönnuðir sýna hönnun sína í Silfurbergi í Hörpu.
Dagskrá tískusýninga laugardagsins hljómar svo:
11:00 AM Farmers Market
11:55 AM Ziska
12:50 PM magnea
13:50 PM ELLA
15:15 PM REY
16:10 PM Sigga Maija
17:05 PM Cintamani
18:05 PM JÖR
Sala á stökum miður á sýningarnar hófst í gær, föstudag, á midi.is og harpa.is. Ég mæli með að þið verðið fljót að gulltryggja ykkur miða á þær sýningar sem ykkur langar að sjá því þetta eiga eflaust eftir að vera stórkostlegar sýningar.
Ég er að minnsta kosti orðin virkilega spennt! Vona að ég sjái sem flesta í Hörpu næsta laugardag!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com