Kron by KronKron
Kron by KronKron voru með glæsilega sýningu á Reykjavik Fashion Festival í Hörpunni.
Stórkostlegar mynstraðar flíkur, með litríkum og mynstruðum sokkabuxum og skóm, allt stíliserað á þann hátt að manni fannst það samt ekki “of mikið” af hinu góða.
Eftir að hafa slegið í gegn með skóna sína get ég ekki annað séð en að þau Magni og Hugrún munu slá í gegn með fatnaðinn líka.
Bravó!
Hér að neðan sjáið þið myndskeið með “finale” sýningarinnar.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=rzK9InSphB0[/youtube]
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.