Heyrst hefur að mikill viðbúnaður hafi verið þegar Tom Cruise ákvað að bjóða konu sinni og dóttur í kvöldverð á Sushisamba.
Reyndar komu þau tvisvar, fyrst þau Katie bara tvö saman og í seinna skiptið komu þau með Suri. Öryggisverðir leikarans höfðu hringt á undan hjónunum þáverandi og fengið nákvæma útlistun á staðnum og svo var pantað borð sem þótti ákjósanlegast svo að þau gætu matast í næði.
Þegar hjónakornin fyrrverandi settust að snæðingi mynduðu öryggisverðirnir ‘skjaldborg’ kringum parið með þrekvöxnum líkömum en sátu jafnframt á næsta borði og fengu sér hressingu.
Íslendingar á næstu borðum reyndu að ‘halda kúlinu’ með misgóðum árangri en einum virðist hafa tekist að taka mynd á símann sinn skv því sem Bíbí hefur séð á netinu.
Eftir að slúðurpressan erlenda komst að því að Tom, Katie og Surie höfðu fengið sér að borða á Sushisamba, stoppaði ekki síminn þar og blaðamenn frá People Magazine og fleiri risum yfirheyrðu starfsmenn um hvað Suri hafi borðað, hvað Tom hafi borðað og hvað Katie fékk sér. Var það hrátt? Eldað? Kjöt? Fiskur? …og svo framvegis.
Stafsmenn staðarins virða þó einkalíf gesta sinna nóg til að gefa ekkert upp um hvað þau settu ofan í sig en nýjustu fregnir herma þó að Tom&Katie borðið sér orðið það eftirsóttasta á þessum vinsæla stað. Svo eftirsótt að Hollywood stjörnurnar sem hér lenda nú hver á eftir annari hafa pantað þetta sama borð.
Spurningin er svo bara… hvaða borð er þetta?
Ef þú veist svarið máttu alveg skella því inn á Facebook hjá okkur…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.